Óvíða er sýninga- og safnastarf með jafn miklum blóma og í Skagafirði, þar sem menningararfurinn er bæði ríkulegur og sögustaðir fjölmargir. Byggðasafn Skagfirðinga stendur fyrir sýningum, varðveislu og rannsóknum, en það hefur í meira en hálfa öld sýnt í Glaumbæ hvernig mannlíf var til forna í torfbæjum. Auk þessa eru fjölmargir aðrir staðir og sýningar sem áhugavert er að heimsækja, t.d. Vesturfarasetrið í Hofsósi, Víðimýrarkirkja við Varmahlíð, Minjahúsið á Sauðárkróki, Samgönguminjasafn Skagafjarðar og Hólar í Hjaltadal.







