Skagfirsk hestamennska

Skagafjörður er einn af þekktustu áfangastöðum hestamanna og er héraðið oft nefnt vagga íslenskrar hestamennsku. Hér fléttast saman saga manns og hests frá örófi alda. Í Skagafirði eru mörg þekktustu hrossaræktarbú landsins og margir helstu ættfeður íslenska hrossastofnsins eru úr Skagafirði, t.d. Hörður frá Kolkuósi, Hrafn frá Holtsmúla, Ófeigur frá Flugumýri, Hervar frá Sauðárkróki og Feykir frá Hafsteinsstöðum.

Í Skagafirði starfa þrjú hestamannafélög, Stígandi, Léttfeti og Svaði.

Árlega eru margir fjölsóttir viðburðir í Skagafirði sem tengjast hestinum. Í Skagafirði er fjöldi hestaleiga og einnig boðið upp á lengri og skemmri hestaferðir, sýningar um íslenska hestinn og heimsóknir á hrossaræktarbú.

Kapall frá Vatnsleysu - Mynd: Ragnar Axelsson





Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Meira um Skagafjörð

Myndasafn