Í Skagafirði er mjög fjölbreytt fuglalíf, t.d. hafa flestallar endur sem verpa á Íslandi sést í héraðinu. Eylendið í Skagafirði er einn af fáum stöðum á landinu þar sem sjá má mikinn fjölda flórgoða. Sigling undir sjófuglabjörgin í Drangey er flestum ógleymaleg upplifun. Héraðið er eitt mikilvægasta viðkomusvæði helsingja á Íslandi og þar að auki hafa hátt í 50 tegundir flækinga sést á svæðinu á undanförnum árum.
Á fjórum góðum fuglaskoðunarstöðum í nágrenni Sauðárkróks hafa verið sett upp upplýsingaskilti fyrir ferðamenn, en þau eru við Áshildarholtsvatn (norðvesturhorn), við tjarnir við flugvallarafleggjara og á tveimur stöðum í Hegranesi; við norðurhluta Garðsvatns og neðan við ferðaþjónustubýlið Keldudal.
Bækling um fuglaskoðunarstaðina má nálgast í Upplýsingamiðstöð í Varmahlíð, eða á pdf-sniði með því að smella á slóðina hér að neðan.






