Á áningarstöðum Vegagerðarinnar eru upplýsingaskilti með landakortum af nánasta nágrenni. Gott er að staldra við á þessu stöðum, njóta útsýnis og skipuleggja ferðina framundan. Víða eru bekkir og borð þar sem hægt er að snæða nestið sitt eða fá sér kaffisopa af brúsa.
Hér að neðan er listi yfir þá staði sem Vegagerðin hefur útbúið til áningar:
- Arnarstapi
- Varmahlíð
- Lauftún
- Vesturós Héraðsvatna
- Gatnamót Austur- og Vesturdals (hálendisupplýsingar)
- Ketilás
- Hjaltadalur (gatnamót Hofsóssvegar og Hjaltadalsvegar)
- Skógarhlíð í Norðurárdal (bekkur/borð)
- Höfðahólar á Höfðaströnd (bekkur/borð)
- Fornustaðir í Fljótum (bekkur/borð)






