Upplýsinga- og söguskilti Fornleifaverndar ríkisins og Þjóðminjasafns Íslands eru á eftirtöldum stöðum í Skagafirði.
• Grafarós (leifar 19. aldar verslunarstaðar)
• Bænhúsið í Gröf (torfkirkja að stofni frá 17. öld)
• Hólar í Hjaltadal (biskupssetur frá 1106. Átjándu aldar steinkirkja)
• Nýibær á Hólum (torfbær frá 19. öld)
• Hegranesþing (leifar þingstaðar frá þjóðveldistíma)
• Víðimýri (torfkirkja frá 19. öld)
• Hof í Hjaltadal (fornleifar frá þjóðveldistíma)
• Flugumýri (virkisleifar á virkishól frá Sturlungaöld)
• Örlygsstaðir (garðleifar á gerðinu þar sem bardaginn var háður árið 1238)







