Útsýnisskífur eru gagnlegar til að átta sig á helstu kennileitum í landinu, örnefnum eða hæð fjalla. Þeim er alla jafna komið fyrir á stöðum þar sem útsýni er gott til allra átta og í Skagafirði eru slíkar skífur á þremur stöðum; í Drangey, á Nöfum ofan við Sauðárkrók og á Reykjarhóli við Varmahlíð.






