Ritið Minnisvarðar í Skagafirði var gefið út og unnið af nemendum Varmahlíðarskóla árið 2005. Þetta er merkileg heimild og ýtarlegur vegvísir um yfir fjörutíu minnismerki vítt og breytt um héraðið. Ritið fæst m.a. í Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð. Minnisvörðum eru oft valdir fallegir staðir sem gaman er að koma á, margir með fögru útsýni til sjávar eða sveita, og því upplagt að grípa ritið með og fara í eftirminnilega ferð sem tengist sögu og menningu Skagafjarðar. Myndir og upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella hér!
| Minnisvarði um: | Staðsetning: |
| Veglögn yfir Skarðið / Myllu-kobba | Hraun í Fljótum |
| Sölva Helgason (Sólon Islandus) | Lónkot í Sléttuhlíð |
| Ólöfu galdrakerlingu | Lónkot í Sléttuhlíð |
| Höfða-Þórð landnámsmann | Lónkot í Sléttuhlíð |
| Vegagerð - útsýnispallur | Höfðahólar á Höfðaströnd |
| Friðrik V. Guðmundsson | Höfði á Höfðaströnd |
| Ingólf Jónsson - Ingólfslundur | Nýlendi á Deildardal |
| Bæina í Óslandshlíð | Hlíðarlundur í Óslandshlíð |
| Fjarkennslu á Íslandi | Hliðarlundur í Óslandshlíð |
| Skipulagða samfélagsþjónustu til forna | Hlíðarlundur í Óslandshlíð |
| Þorvarð Spak-Böðvarsson, ættfaðir Ásbirninga | Neðri-Ás í Hjaltadal |
| Jón Arason biskup (klukkuturninn) | Hólar í Hjaltadal |
| Guðmund góða Arason biskup | Hólar í Hjaltadal |
| Jósep Jón Björnsson skólastjóra | Hólar í Hjaltadal |
| Zóphanías Halldórsson prófast | Hólar í Hjaltadal |
| Hermann Jónasson | Syðri-Brekkur í Blönduhlíð |
| Stóðhestinn Ófeig 882 | Flugumýri í Blönduhlíð |
| Skúla Magnússon fógeta og sýslumann | Stóru-Akrar í Blönduhlíð |
| Örlygsstaðabardaga | Örlygsstaðir í Blönduhlíð |
| Pétur, Jón og Brynjólf Péturssyni | Víðivellir í Blönduhlíð |
| Bólu-Hjálmar | Bóla í Blönduhlíð |
| Vegagerð í Norðurárdal | Silfrastaðir í Norðurárdal |
| Drauginn Skeljung | Silfrastaðir í Norðurárdal |
| Gæðinginn Stíganda | Vindheimar í Tungusveit |
| Hóftunga - Vigdísarlundur | Vindheimar í Tungusveit |
| Herselíu Sveinsdóttur skólastjóra | Steinsstaðir í Tungusveit |
| Stephan G. Stephansson skáld | Arnarstapi á Vatnsskarði |
| Ingibjörgu Jóhannsdóttur | Varmahlíð (Gamli-skógur) |
| Sigurð Jónasson skógarvörð | Varmahlíð |
| Guðrúnu Sveinsdóttur kennara | Varmahlíð (Gamli-skógur) |
| Látna mótorhjólamenn | Varmahlíð |
| Ingibjörgu Jóhannsdóttur og Björgu Jóhannesdóttur | Langamýri í Vallhólmi |
| Stofnun Húsmæðraskólans | Langamýri í Vallhólmi |
| Stjarna, reiðhest Sigurðar Skagfield | Brautarholt á Langholti |
| Guðríði Þorbjarnardóttur | Glaumbæjarkirkjugarður á Langholti |
| Gísla Konráðsson sagnfræðing | Glaumbær á Langholti |
| Pálínu Konráðsdóttur bónda | Skarðsá í Sæmundarhlíð |
| Gunnar Ólafsson og Sigurlaugu Magnúsdóttur | Keflavík í Hegranesi |
| Víðishólmi | Reiðhöll, Sauðárkróki |
| Hryssuna Flugu | Reiðhöll, Sauðárkróki |
| Síðustu ábúendur á Sauðá |
Við Hásæti, Sauðárkróki |
| Jón Nikódemusson hitaveitustjóra | Dælustöð, Sauðárkróki |
| Jónas Kristjánsson lækni og stofnanda NLFÍ | Við Heilbrigðisstofnun, Sauðárkróki |
| Konur á Króknum | Freyjugata (Frúarstígur), Sauðárkróki |
| Ábúendur á Hrauni | Hraun á Skaga |
| Grettir sterka Ásmundarson |
Fagranes á Reykjaströnd |





