Skagafjörður er mikið matvælahérað en hér mætast fjölbreyttur landbúnaður og öflug vinnsla sjávarafurða. Veitingahús og verslanir leggja sig fram við að kynna fyrir ferðamönnum skagfirskar afurðir og rétti unna úr skagfirskum hráefnum.
Þróunarverkefnið Matarkistan Skagafjörður miðar að því að auka þátt skagfirskrar matarmenningar í veitingaframboði á svæðinu þannig að gestir geti notið gæðahráefnis og upplifað menningu svæðisins. Merki Matarkistunnar er ætlað að draga athyglina að mat sem framleiddur er frá grunni eða að hluta í Skagafirði.
Veitingastaðir sem eru þátttakendur í verkefninu merkja þá rétti á matseðli sem eru að stærstum hluta úr skagfirsku hráefni. Þar má nefna nautakjöt, rækjur, lambakjöt, hrossakjöt, fisk s.s. þorsk og bleikju, brauð og ost, t.d. mozarellaost. Í verslunum í héraðinu er hægt að finna fjölbreytt úrval af skagfirskum matvörum.
Kíkið eftir merki Matarkistunnar og bragðið brot af því besta í skagfirskum mat!





