Fornleifarannsóknir hafa víða farið fram í Skagafirði síðustu misseri, s.s. á Hólum, við Kolkuós, í Glaumbæ og Keldudal í Hegranesi. Hluti þeirra muna sem fundist hafa á Hólum eru til sýnis í skólahúsinu þar og í Keldudal er upplýsingaskilti um kumlin og það sem sá uppgröftur leiddi í ljós. Einnig er í Minjahúsinu á Sauðárkróki sýningin Margt býr í moldinni, sem kynnir fornleifarannsóknir í Skagafirði síðustu áratugi.






