Stutt til allra átta

Þjóðvegur 1 liggur í gegnum Skagafjörð, um Varmahlíð, en þaðan er innan við hálftíma akstur til Sauðárkróks, Hóla eða Hofsóss.

Nýr uppbyggður vegur liggur frá Blönduósi yfir Þverárfjall sem styttir vegalengdina til Sauðárkróks niður í 39 km. Innan við klukkustund tekur að keyra frá Akureyri í Skagafjörð.

Flugferðir frá Reykjavík eru oft í viku og taka rúman hálftíma. Bílaleiga er á Sauðárkróki. Rútuferðir eru daglega í Skagafjörð yfir sumartímann.

VEGALENGDIR:

  • Reykjavík -Sauðárkrókur: 290 km
  • Reykjavík ? Varmahlíð: 294 km
  • Akureyri ? Varmahlíð: 94 km
  • Varmahlíð ? Sauðárkrókur: 24 km
  • Sauðárkrókur ? Hólar: 31 km
  • Sauðárkrókur ? Hofsós: 38 km
  • Hofsós ? Ketilás í Fljótum: 30 km




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures