Aðstaða til allrahanda íþróttaiðkunar er mjög góð í héraðinu. Á sumrin flykkist ungt íþróttafólk á fótboltamótin Króksmót og Landsbankamót stúlkna, auk þess sem Norðurlandsmót í frjálsum íþróttum hefur verið vinsælt.
Á siðustu árum hafa Skíðalandsmót Íslands, Landsmót- og Unglingalandsmót UMFÍ, Landsmót hestamanna og fleiri stórmót verið haldin í Skagafirði. Áfram er stefnt að því að Skagafjörður verði mikilvægur vettvangur stórra íþróttamóta.






