Laufskálarétt í Hjaltadal er vinsælasta stóðrétt landsins en þangað mæta árlega allt að þrjú þúsund gestir. Alla jafna hefst Laufskálaréttarhelgin á föstudagskvöldi með stórskemmtun í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Á laugardeginum er réttað eftir að stóðið hefur verið rekið úr Kolbeinsdalnum, og um kvöldið eru svo fjölmennir réttardansleikir. Laufskálarétt fer fram síðustu helgina í september.

Laufskálarétt 2011 verður 24. september





