Söng- og kórastarf er í miklum blóma yfir vetrartímann og þá lifnar einnig yfir leiklistarfólki. Fjöldi viðburða er í desembermánuði og þá er gefið út sérstakt viðburðadagatal.
Áshús í Glaumbæ er opið um helgar á jólaföstu. Þar er kynnt jólahald fyrr á tímum og boðnar veitingar í anda jólanna. Þorrablót og fleiri viðburðir taka svo við eftir áramótin og svo má ekki gleyma fjölbreyttri dagskrá kringum skíðahelgi á páskum í Tindastólnum.
Af öðrum viðburðum má nefna fjölmarga á íþróttasviðinu, t.d. í körfubolta og hestaíþróttum.






