Í tilkomumiklu gljúfrinu er sérkennileg og falleg friðlýst fossaröð. Gengið upp með ánni, að gilinu þar sem sagt er skessan Bóla hafi haldið sig. Bólugil er við þjóðveg nr.1, við bæinn Bólu í Blönduhlíð, um 25 km sunnan við Varmahlíð, á leiðinni milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar.






