Talsvert fuglalíf er í Hegranesi, bæði á sunnanverðu nesinu og við Garðsvatn, sem tilheyrir Eystra-eylendinu (sjá bæklinginn Fuglaskoðun í Skagafirði). Fornleifar hafa fundist við Keldudal og er þar upplýsingaskilti um fundinn, auk upplýsingaskiltis fyrir fuglaáhugamenn. Sagt er að í Hegranesi séu miklar byggðir álfa og huldufólks. Leifar hins forna Hegranesþings eru stutt frá þjóðveginum milli Hóla/Hofsóss og Sauðárkróks






