Skagfirsk sælkerastemning

Skagfirðingar eru miklir sælkerar og skiptir þá einu hvort um er að ræða að njóta fornrar matarmenningar og -hefða, eða nýjustu strauma í íslenskri matargerð. Matartengdum viðburðum fer fjölgandi ár frá ári, þar sem gestum gefst kostur á að upplifa matargerð sem nýtir skagfirskt hráefni. Má þar m.a. nefna þorsk, rækju og bleikju, brauð, mjólkurvörur og osta, og nauta- lamba- og hrossakjöt. Ef þér þykir gott að láta kitla bragðlaukana, þá skoðaðu sérstaklega:

Kvöldverður að Handan vatna hætti, í Áskaffi við Glaumbæ

Hrossaveisla á Hótel Varmahlíð

Auk þess má bragða brot af því besta í skagfirskri matargerð á:

SveitaSæla - Landbúnaðarsýning og bændahátíð (um miðjan ágúst)

Bændadagar í Skagfirðingabúð - Bændur gefa smakk og bjóða afurðir sínar á einstökum tilboðsverðum (eftir sláturtíð, október/nóvember)

 





Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures