Á Sturlungaslóð

Þetta málverk Jóhannesar Geirs á að sýna Flugumýrarbrennu. Hann málaði syrpu mynda af atburðum sem gerðust í Skagafirði á 13. öld, Sturlungaöld.

Þetta málverk Jóhannesar Geirs á að sýna Flugumýrarbrennu. Hann málaði syrpu mynda af atburðum sem gerðust í Skagafirði á 13. öld, Sturlungaöld.

Flugumýrarbrenna (1253) var einn óhugnanlegasti atburður Sturlungaaldar. Þar reyndu óvinir Gissurar Þorvaldssonar að brenna hann inni. Yfir tuttugu manns fórust í brunanum, en Gissur slapp með því að sökkva sér í sýruker. Ef þú vilt koma við á stöðum sem tengjast at­burðum á Sturl­ungaöld og fá að vita um hvernig sagt er frá þeim í Sturlungasögu, og um lit­ríkar persónur hennar og örlagaríka at­burði, komdu þá Á Sturl­unga­slóð í Skagafirði.

Sturl­unga­öldin, eins og þrett­ánda öldin var kölluð, er kennd við átök vestlenskra höfðingja af ætt Sturl­unga við höfð­ingja af ætt Ás­birn­inga, sem öllu réðu í Skaga­­firði. Þeir börðust líka við aðrar gamlar valdættir um allt land. Inn í átökin fléttuðust árekstrar við Guð­mund góða Ara­son Hóla­biskup um völd og áhrif.

Þrátt fyrir að Sturlungaöld ein­kennd­ist af grimmdarverkum og ógn­vekjandi bardögum hafa atburðirnir yfir sér ævintýraljóma og oft er vitn­að til þess sem þá var, enda um að ræða vitnisburð samtímaritara sem lifði atburði þessarar ógnar­ald­ar. Þú getur farið milli sögustaða á eigin vegum og valið þá þjónustu sem í boði er á hverjum stað. Þú getur notið kyrrðar og fegurðar náttúrunnar og fylgst með búskap og öðru bardúsi um leið og þú nýtur sögunnar. Þú getur farið á hestbak, í gönguferð með sögumönnum eða á eigin vegum, tekið sundsprett í heitum og heilsusamlegum sundlaug­um eða baðað þig úti í náttúr­unni að hætti miðaldamanna.

Í Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð getur þú fengið sögukort og upplýsingar um staði og þjónustu Á Sturlungaslóð. Þú getur komið við á Örlygsstöðum, Haugsnesi, Flugumýri, Hólum, Hegranesþingstað, Glaumbæ og Víðimýri. Fáðu upplýsingar um þjónustu og viðburði sem tengjast Sturlungaslóðinni í Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð

 





Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures