Hvítabjörninn (karldýrið) sem veginn var á Þverárfjalli 3. júní 2008 er til sýnis á Náttúrustofu Norðurlands vestra, Aðalgötu 2 á Sauðárkróki. Verið velkomin að koma og skoða björninn alla virka daga frá kl. 8:00 - 17:00. Hafið samband ef um annan tíma er að ræða.






