Tvö heilsárshótel og eitt sumarhótel

Þrjú hótel eru í Skagafirði og eru tvö þeirra opin allt árið. Fyrir utan að bjóða gistingu og mat eru hótelin góður vettvangur fyrir ýmiskonar veislur, fundahöld og ráðstefnur. Hótelin eru staðsett í Varmahlíð og á Sauðárkróki og eru tenglar á þau hér að neðan.

 

Hótel Tindastóll

Hótel Tindastóll er eitt elsta hótel á íslandi og hefur 10 herbergi, sjö tveggja manna herbergi, eitt herbergi með tveimur eins manns rúmum og tvær svítur þar sem eru tvö tvíbreið rúm og henta því vel fyrir fjölskyldur. Í öllum herbergjum er fataskápur, skrifborð í Tudor-stíl, suðukanna ...

Hótel Varmahlíð

Á Hótel Varmahlíð er boðið upp á góða gistingu í 19 huggulegum herbergjum búnum helstu þægindum. Hótelið sem er þriggja stjörnu er vel staðsett í Varmahlíð, hjarta Skagafjarðar. Á hótelinu eru eins, tveggja og þriggja manna herbergi. Að auki er rúmgott fjölskylduherbergi þar sem allt ...

Hótel Mikligarður

Hótel Mikligarður (fyrrum Fosshótel Áning) er rekið af sömu aðilum og eiga gistiheimilið Miklagarð.Það er staðsett við einu krossgötu bæjarins, ofan við íþróttahúsið. Á bak við hótelið er fallegt útivistar og göngusvæði í svokölluðum Litla-skógi. Við hlið hótelsins eru tröppur upp ...




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Meira um Skagafjörð

Myndasafn