Svefnpokapláss
Gisting í svefnpokaplássi er einn ódýrasti gistikostur sem býðst á ferðalögum. Nokkrir gististaðir í Skagafirði bjóða uppá svefnpokapláss þar sem oft er boðið uppá eldunaraðstöðu, aðgang að salerni eða heitum pottum og sundlaug. Kynntu þér valkostina nánar hér að neðan!
Á slóðum Sturlunga og Ásbirninga.Heimagisting:Í boði eru - uppbúin rúm,svefnpokapláss og morgunverður.Opið allt árið.Einnig er smáhýsi 25 fm, með gistiplássi fyrir 4-5 manns og hægt að leigja í einn sólarhring eða lengur. Útbúið öllum nútímaþægindum í skjólsælu umhverfi.Bærinn er ...
Leifshús í Hegranesi er staðsett í hjarta Skagafjarðar, 13 km frá Sauðárkrók.Húsið er tvær hæðir, á neðri hæð er fullbúið eldhús, baðherbergi með sturtu og þvottavél,sjónvarpsstofa og tvö svefnherbergi. Á efri hæð hússins er stórt svefnherbergi og mjög stór setustofa sem jafnframt ...
Ferðaþjónustan á Hofsósi selur gistingu í nokkrum húsum í þorpinu.Sunnuberg gistihús þar sem öll herbergi eru með baði 1x1m og 4x2ja manna. Sjónvarpsherbergi aðstaða til að hella á kaffi.Prestbakki gisting í einbýlishúsi á tveimur hæðum, 5x 2manna og 1x þriggja manna eldhúsog stofa ...
Steinsstaðir eru við veg 754. Opið: Allt árið. Sundlaug: 100 m. Verslun: Varmahlíð 11 km. Flúðasiglingar: 10 km. Hestaleiga: Hestasport - Ævintýraferðir, Vegamótum, Varmahlíð 11 km. Golf: Sauðárkrókur 36 km. Gestgjafar Friðrik R. Friðriksson og Jóhanna Sigurðardóttir Steinstadir is ...
Sumarhús og gisting í svefnpokaplássi. Sumarhúsið er á efri hæð, 52m2. Þar eru tvö tveggja manna herbergi með tvíbreiðum rúmum og svefnloft. Stofa, baðherbergi og vel útbúið eldhús. Á neðri hæð eru tvö tveggja manna herbergi, ...
Gistiaðstaðan er á sérhæð á bænum.Uppbúin rúm, svefnpokagisting og morgunverður - fyrir u.þ.b.10 manns í gistinguSilungsveiði í Vatnshlíðarvatni. Vel staðsett til skoðunarferða um Skagafjörð. Rjúpna- og gæsaveiði á haustin. ...
Ferðaþjónustan Bakkaflöt er við veg 752 , 11 km frá Varmahlíð. Gisting er boðin í 20 herbergjum og í tveimur sumarhúsum 40 og 25 fermetra. Morgunverður, kvöldverður, vínveitingar, öl og gosdrykkir. Heitir pottar og lítil sundlaug eru á Bakkaflöt. Þar er gott tjaldsvæði við Svartá, ...
Sölvanes er hefðbundinn sveitabær í kyrrlátri sveit, 21 km sunnan við Varmahlíð.Gisting er boðin í hlýlegu eldra íbúðarhúsi (gamla bæ) með eldunaraðstöðu og einnig inni á heimilinu, en þar snæða allir gestir morgunverð. Kvöldverður með heimilisfólki er í boði en panta þarf fyrirfram. ...
Í Lauftúni er gistiaðstaða og tjaldsvæði með snyrti- og eldunaraðstöðu. Heitur pottur. Aðstaða fyrir tjaldvagna. Vel staðsett til skoðunarferða um Skagafjörð. Áhugaverðir staðir t.d. Víðimýrarkirkja, byggðasafnið ...
Á Löngumýri er mjög góð aðstaða til lengri eða skemmri dvalar.Gisting er fyrir 26 manns í 15 herbergjum, 4 eins manns og 11 tveggja manna.Herbergin eru með sameiginlegum snyrtingum, en þær eru margar svo aðeins eru tvö herbergi um hverja þeirra. Að auki er íbúð á efri hæð í gamla ...
Ferðaþjónustan Sólgörðum/Ökrum í Fljótum er starfrækt allt árið en áhersla er lögð á sumartímann 15.06 til 15.09. Í Sólgarðaskóla er mjög góð aðstaða fyrir hópa. Stórt eldhús fullbúið tækjum borðstofa sem rúmar um 35 manns. Gisting er í fjórum herbergjum þar af er eitt stór stofa. ...
At Bjarnagil you will find an exhibit of motorisation both auto and farm machinery can be viewed.
Ferðaþjónustan Lónkot í Skagafirði hóf starfsemi sína árið 1991 með gistiaðstöðu í uppgerðum útihúsum. Æ síðan hefur verið bætt við þjónustu tengda starfseminni. Veitingastaðurinn Sölvabar var opnaður árið 1995 og hefur áunnið sér gott orð fyrir áhugaverða og ljúffenga matargerð úr ...