Félagsheimili um allan fjörð

Níu félagsheimili eru til útleigu í Skagafirði, en þau henta vel fyrir ættarmót og aðra stærri mannfagnaði. Aðstaða í félagsheimilunum er alla jafna mjög góð; eldhús, salerni og svefnpokapláss. Auk þess eru ágæt tjaldsvæði við þau flest og því hægt að gista bæði úti og inni. Í stórum sölunum er gott rými til leikja fyrir börn og fullorðna. Félagsheimilið Bifröst á Sauðárkróki er með föstum bíósætum og hentar því vel fyrir ráðstefnur og námskeið. Með því að smella hér finnurðu nánari upplýsingar um félagsheimili í Skagafirði.

Félagsheimili Rípurhrepps

Félagsheimili Rípurhrepps tekur 110 manns í sæti. Eldhús, svið, búningsaðstaða (takmörkuð), dansgólf, veitingaleyfi og gistileyfi fyrir allt að 20 manns.The community hall in Ripuhrepp can seat 100 people. Kitchen, stage, dressing rooms (limited), dance floor, drinks and accommodation ...

Félagsheimilið Árgarður

Árgarður tekur 100 + í sæti, eldhús, svið, dansgólf, búningsaðstaða.Þar er gistileyfi fyrir allt að 20 manns.Argardur seats 100, kitchen, stages, dance floor and dressing rooms. Accommodation license is for 20 people.

Félagsheimilið Höfðaborg

Höfðaborg tekur 250 manns í sæti. Eldhús, svið, búningsaðstaða og dansgólf. Aðalsalur og tveir minni salir. Sturtuaðstaða.Húsið hefur veitingaleyfiHofdaborg seats 250 people. Kitchen, stage, dressing rooms and dance floor. There is one main hall and two lesser halls. Showers. The ...

Félagsheimilið Melsgil

Melsgil tekur um 100 manns í sæti. Eldhús, dansgólf, svið og búningsaðstaða. Og þar er gistileyfi fyrir allt að 20 manns.Melsgil seats 100. Kitchen, dance floor, stage and dressing rooms. Accommodation license for 20 people

Félagsheimilið Ljósheimar

Getum tekið á móti hópum, í mat og kaffi með litlum fyrirvara. Bjóðum auk þess upp á góða svefnpokagistingu. Kjörið tækifæri fyrir hópa, stóra og smáa, ættarmót, afmælim, vinkonurnar og vinina, sem vilja heimsækja Skagafjörð.*Morgunmatur*Hádegismatur*Kaffi, brauð og bakkelsi*KvöldmaturSanngjarnt ...

Félagsheimilið Skagasel

Í Skagaseli er stór salur sem tekur 150-160 manns í sæti, þar er dansgólf og hljómsveitarpallur. Annar minni salur er í húsinu, eldhús, snyrtingar og sturtuaðstaða. Húsið hefur veitingaleyfi og gistileyfi fyrir allt að 20 manns.Skagasel has a large hall, which seats 150-160 people; ...

Félagsheimilið Ketilás

Ketilás tekur 150 manns í sæti. Eldhús, hljómsveitarpallur og dansgólf.Ketilas can seat 150 has a kitchen, band stage and dance floor.




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures