Flúðasiglingar á jökulsánum í Skagafirði eiga vaxandi vinsældum að fagna, enda sameinar slík ferð frábæra skemmtun, spennu og ferðalag um einstök náttúruundur. Tvö fyrirtæki í Skagafirði hafa áralanga reynslu af því að bjóða örugga og góða þjónustu við allra hæfi. Hægt er að velja um mismunandi erfiðleikastig, sem hentar bæði fjölskyldufólki sem og ofurhugum. Nánari upplýsingar má nálgast í Upplýsingamiðstöðinni. Flúðasiglingar í gljúfrum jökulánna í Skagafirði eru mögnuð upplifun sem seint gleymist!








