Drangey

Drangey er eitt af helstu kennileitum Skagafjarðar, þar sem hana ber tignarlega við himin fyrir miðjum firði. Við hlið hennar stendur Kerlingin, klettastrýta sem þjóðsagan segir að hafi verið tröllkerling að reka kú sína yfir fjörðinn, en hafi verið of sein og orðið að steini þegar sólin kom upp. Drangey er kýrin í sögunni. Klettur sem var norðan við eyna (karlinn sem teymdi kúna) hrundi í jarðskjálfta 1755.

Í Drangey gefur að líta hrikalega náttúrufegurð og fjölskrúðugt fuglalíf. Þarna bjó útlaginn Grettir með bróður sínum Illuga og þrælnum Glaumi í þrjú ár, en var á endanum veginn í eynni. Drangey var einnig forðabúr eða matarkista Skagfirðinga um aldir, þangað sóttu menn  bæði fugl og egg. Yfir sumarið er hægt að komast í siglingar um Skagafjörð, t.d. í Drangey, Málmey og Þórðarhöfða, frá Sauðárkróki og Reykjum á Reykjaströnd, þar sem Grettislaug er. Drangey er aðeins kleif á einum stað, í Uppgönguvík. Í eynni er Drangeyjarskáli, byggður 1984.

Heimsókn í Drangey opnar heim sögu, menningar og magnaðrar náttúru

Drangeyjarferðir

DrangeyjarferðirPöntunarsímar: 453-6310 / 8458150 / 4536503Sigling út í Drangey er ævintýri líkust enda er eyjan náttúruperla í miðjum Skagafirði. Sigling frá Reykjum tekur um 30 mínútur en ekki er um fastar ferðir að ræða. Fuglalíf er fjölbreytt í Drangey þótt mest beri þar á svartfuglategundum: ...

Málmeyjarferðir / Sjóstangveiði

Málmey er eyja á Skagafirði, og skilur Málmeyjarsund á milli hennar og Þórðarhöfða. Hún er 7 km löng og 1 km á breidd en mjókkar til endanna. Hún er fremur láglend, einkum að sunnan, en hækkar því meir,sem norðar dregur og er hæst 156 m. Þar heitir Kaldbakur. Suðurendi hennar er klettastapi ...




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures