Skagafjörður býður upp á fjölbreyttar og fagrar gönguleiðir, hvort sem áhugi er á stuttri göngu og léttri útiveru, eða lengri og meira krefjandi ferð fyrir göngugarpa. Léttar og skemmtilegar fjölskylduleiðir eru á mörgum stöðum í eða við þéttbýli, s.s. í Litla-Skógi á Sauðárkróki, Hólaskógi í Hjaltadal og á Reykjarhóli í Varmahlíð.
Gott er hafa meðferðis handhægar upplýsingar þegar farið er í gönguferð í náttúrunni, en göngukort o.fl. gagnlegt má fá í Upplýsingamiðstöð í Varmahlíð og víðar. Fjallaskálar í eigu Ferðafélags Skagfirðinga auka á möguleika í samsetningu gönguferða í óbyggðum, bæði við hálendisbrúnina og í fjöllunum vestan Skagafjarðar. Hægt er að fá upplýsingar um gönguleiðir og fjallaskála í Upplýsingamiðstöðinni eða á vefsíðu Ferðafélags Skagafjarðar.
Vinsælustu fjöllin hjá göngugörpum eru Mælifellshnjúkur, Molduxi, Tindastóll og Hólabyrða sem öll eru með stikaðar gönguleiðir, en perlurnar Austurdalur og Tröllaskagi njóta vaxandi vinsælda útivistarfólks.






