Ný braut á Sauðárkróki

Akstur torfæruhjóla er vaxandi íþrótt sem mikill áhugi er á á Sauðárkróki. Ný og glæsileg keppnisbraut hefur verið opnuð við Gönguskarðsána, norðan við bæinn.

Við motocrossbraut Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar er félagsheimili klúbbsins þar sem hægt er að hvíla sig eftir æfingu ef aðstaðan er opin. Brautin sjálf er um 1,3 km, fjölbreytt, tæknilega krefjandi og hefur hún fengið gott lof þeirra sem hana hafa reynt.
Hægt er að kaupa dagpassa í brautina á Bláfelli sem er staðsett beint á móti Sundlaug Sauðárkróks. Dagpassinn kostar 1000.-
Ekki hika við að koma í heimsókn og taka nokkra hringi í brautinni yfir sumarið.

Nú í ár (2011) verður haldið íslandsmót í motocrossi á vegum Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar.
Mótið verður 4. Júní 2011 í braut félagsins og hvetur klúbburinn alla til að kíkja á skemmtilega afþreyingu og njóta dagsins með þeim.

Frá motocrosskeppni í brautinni við Sauðárkrók

Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar

Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar er fremur nýlegt félag með metnaðarfulla starfsemi. Félagið var formlega stofnað 3. apríl árið 2005 og voru félagsmenn 60 talsins í júní árið 2009. Helstu markmið klúbbsins eru að viðhalda góðu æfingasvæði fyrir íþróttina og stuðla að öryggi ökumanna. ...




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures