Skíðasvæðið í Tindastóli
er einstaklega hentugt fyrir alla fjölskylduna, með brekkum fyrir jafnt byrjendur sem lengra komna, brettafólk og gönguskíðamenn. Skíðabrekkurnar eru breiðar og veita mikla möguleika. Neðri hluti svæðisins (neðstu 300 m) hentar mjög vel börnum og byrjendum. Efri hlutinn er brattari og fyrir brettafólkið eru spennandi gil meðfram aðalbrekkunni.Á svæðinu er troðin göngubraut sem er upplýst að mestu og í skíðaskálanum eru seldar heimilislegar veitingar. Það tekur um þrjá tíma að skjótast úr höfuðborginni í Tindastólinn, þar sem bíða þín pallar, púður, fjör og brosandi andlit um allar brekkur!
Upplýsingar um skíðasvæðið í Tindastóli:
- Lyfta í Tindastóli: 1.100 m, upplýst
- Hæð í m.y.s: 445 m ? 690 m (fallhæð 245 m)
- Göngurhringur upplýstur, alls um 3.000 m
- Útleiga á skíðum, brettum og göngubúnaði
- Útlán á hjálmum fyrir börnin meðan birgðir endast
- Kaffi, kakó, bakkelsi og aðrar veitingar
- Vefmyndavél og upplýsingar á www.tindastoll.is/skidi







