Mannlíf í torfbæjum m.m.

Í meira en hálfa öld hefur Byggðasafn Skagfirðinga boðið upp á sýninguna „Mannlíf í torfbæjum” í Glaumbæ, þar sem sjá má hversdagsáhöld í sínu eðlilega umhverfi vitna um horfna tíð og daglega iðju fólks fyrr á öldum. Við Glaumbæ eru einnig tvö 19. aldar timburhús, Gilsstofa og Áshús, en í því síðarnefnda er rekið kaffihús og einnig safnbúð. Þar má upplifa stemningu liðinna tíma og bragða á gómsætu bakkelsi að þjóðlegum hætti.

Þjóðbúningar og merkir munir í Áshúsi við Glaumbæ

Á efstu hæð Áshúss er sýning á ýmsum heimilisbúnaði. Þar er einnig 300 ára kaffisaga Íslendinga, þjóðbúningar og útskornir nytjahlutir, sem margir eru eftir Hjálmar Jónsson frá Bólu og af heimili hinnar merku átta barna móður á Merkigili, Moniku Helgadóttur. Heimsókn í torfbæinn og Áshús tengir okkur við forfeður okkar og rammíslenskar rætur á ógleymanlegan hátt. Glaumbær er við Sauðárkróksbraut (þjóðvegur nr. 75), skammt norðan við Varmahlíð.

Við hlið torfbæjarins stendur Glaumbæjarkirkja sem vert er að skoða. Minnisvarðar eru einnig allnokkrir á svæðinu, m.a. um Guðríði Þorbjarnardóttur, "fyrstu hvítu móðurina í Ameríku". Einnig er þar minnismerki um Gísla Konráðsson sagnaritara, og í kirkjugarðinum hvílir Miklabæjar-Solveig, sem var ein þekktasta afturganga skagfirkskrar sögu.

 Heimasíða Byggðasafns Skagfirðinga

 

Áshús

Í Áshúsinu, sem var byggt árið 1883-1886 í Ási í Hegranesi, eru sýndir húsmunir frá fyrri hluta 20. aldar, eldhús frá fyrstu dögum rafmagns- og plastvæðingar, munir frá Moniku á Merkigili, útskurður Bólu-Hjálmars og tveir glæsilegir faldbúningar. Annar er sparibúningur Sigurlaugar ...

Áskaffi - Kaffistofa

Áskaffi er í Áshúsinu við Glaumbæ og þar er lögð áhersla á algengt 20. aldar kaffimeðlæti, sem sumt á ættir að rekja til fyrri alda til að gefa gestum okkar hugmynd um íslenska matar- og kaffimenningu, sem er svo stór hluti af okkar fjölþætta menningararfi, eins og siðir í matargerð ...

Glaumbær

Húsaskipan þessa aldna stórbýlis og hversdagsáhöldin í sínu eðlilega umhverfi bera á áhrifaríkan hátt vitni umhorfna tíð og daglega iðju fólksins. Í Glaumbæ skoða árlega um 25 þúsund gestir sýninguna: ?Mannlíf í torfbæjum á 19. öld?, sem var fyrst opnuð 1952 og hefur verið endurnýjuð ...

Glaumbæjarkirkja

Glaumbæjarkirkja er reist 1925-1926 og í henni er margt merkilegra gripa. Þar á meðal eru spjöld úr gömlum prédikunarstóli frá 1685 með myndum af Kristi, Pétri, Lúkasi, Matteusi, Markúsi, Maríu mey og krossfesting­unni, sem prýða veggi kirkjunnar.Arkitektar kirkjunnar voru Einar ...

Gilsstofa

Gilsstofan er eftirgerð húss sem reist var árið 1849 að Espihóli í Eyjafirði. Það var Ólafur Briem timburmeistari á Grund sem byggði húsið, eða stofuna eins og það hefur alltaf verið kallað, fyrir bróður sinn Eggert Briem. Eggert varð sýslumaður Skagfirðinga 1861 og flutti húsið með ...




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Meira um Skagafjörð

Myndasafn