Í Minjahúsinu á Sauðárkróki er sýning sem er einstök á landsvísu, en á henni má sjá hvernig lítil véla-, trésmíða-, úrsmíða-, og söðlaverkstæða voru hér áður fyrr. Sum verkstæðanna voru flutt í Minjahúsið í heild sinni. Sýningin „Margt býr í moldinni” kynnir á einstakan hátt fornleifauppgröft í Skagafirði. Í Minjahúsinu er einnig safnbúð.








