Gestastofa Sútarans

 

Gestastofa sútarans var opnuð síðastliðið vor á Sauðárkróki í einu sútunarverksmiðjunni í Evrópu sem framleiðir leður úr fiskroði. Með gestastofunni er ferðamönnum og almenningi opnaður aðgangur að sútunarverksmiðju og afurðum hennar á mjög sérstakan hátt. Boðið er upp á skoðunarferð um verksmiðjuna þar sem sjá má hvernig venjulegt fiskroð verður að úrvals leðri.

Í verslun gestastofunnar gefst síðan tækifæri til kaupa hönnun og handverk úr hráefninu og þar

er einnig hægt að versla leður og skinn beint frá sútara.

Fiskleður hefur heillað hönnuði heimsþekktra vörumerkja eins og Prada, Dior og Nike. Í Gestastofu sútarans getur fólk kynnst þessu sérstaka hráefni af eigin raun og hver veit nema kvikni ný hugmynd að hönnun eða handverki?

Heimsókn í gestastofu sútarans er einstök upplifun.

Gestastofa Sútarans

Gestastofa sútarans var opnuð síðastliðið vor á Sauðárkróki í einu sútunarverksmiðjunni í Evrópu sem framleiðir leður úr fiskroði. Með gestastofunni er ferðamönnum og almenningi opnaður aðgangur að sútunarverksmiðju og afurðum hennar á mjög sérstakan hátt. Boðið er upp á skoðunarferð ...




Í Landnámu er elsta heimild um hross á Íslandi, þar sem segir frá hryssunni Flugu sem Flugumýri heitir eftir?

Myndasafn / Pictures