Velkomin í Skagafjörð

Í Skagafirði getur þú upplifað íslenska menningu og lífsstíl eins og hvergi annars staðar. Skoðaðu stórbrotna náttúru, njóttu hestamennsku og taktu þátt í viðburðum og starfsemi fyrir alla fjölskylduna. Uppgötvaðu söguleg svæði, söfn og einstaka sýningar. Þessi vefsíða sýnir allt sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða, og gestastofur okkar í Varmahlíð og Sauðárkróki eru tilbúnar til að hjálpa þér að skipuleggja ógleymanlega ferð.

Upplýsingamiðstöðvar

í Skagafirði

Upplýsingamiðstöðvar Skagafjarðar

Upplýsingamiðstöðvarnar í Varmahlíð og á Sauðárkróki eru opnar allan ársins hring. Þar er hægt að nálgast kort, bæklinga og allar almennar upplýsingar um þá þjónustu og afþreyingu sem í boði er í Skagafirði.

  • Upplýsingar um gistingu, afþreyingu og þá þjónustu sem í boði er í Skagafirði
  • Söfn og þá miklu sögu Skagafjarðar.
  • Frítt WiFi


Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð

Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð er staðsett í húsnæði Alþýðulistar við hliðin á Olís í Varmahlíð.

  • +354 455 6161
  • info@visitskagafjordur.is

Kort af Skagafirði

Þessi kort sýnir Skagafjarðarsvæðið á Norðurlandi, þar með talið nálæga bæi, fjöll, firði og helstu vegi.

Hvað kortið sýnir

Bæir (rauðir punktar)
Staðir eins og Sauðárkrókur, Blönduós, Siglufjörður og Ólafsfjörður eru merktir með rauðum punktum. Þetta eru helstu byggðarlögin í svæðinu.

Þorp/athyglisverðir staðir (gulir punktar)
Minni samfélög eða kennileiti eins og Hofsós, Varmahlíð, Skagaströnd og Árskógssandur eru sýnd með gulum punktum.

Vegakerfi (rauðar línur)
Helstu vegir tengja bæina. Þjóðvegur 1 (Hringvegurinn) liggur í gegnum Blönduós og heldur áfram til Varmahlíðar og Akureyrar, sem tengir svæðið við restina af Íslandi.

Fjöll og landslag (brún skygging)
Skygging á kortinu sýnir hæð. Dökkbrúnu svæðin gefa til kynna hærri fjöll, sérstaklega kringum Tröllaskagann og nálægt Siglufirði. „Fjallaskáli 39–40“ merkir fjallaskála á hálendinu.

Vatnaauðkenni (blátt)
Fjörður eins og Skagafjörður og Eyjafjörður, ár og vötn eru greinilega merkt. Fjörðurnar móta strandsvæðið og eru mikilvægar fyrir fiskveiðar og samgöngur.

Þéttbýliskjarnar í Skagafirði

  • Sauðárkrókur

    Sauðárkrókur er stærsti þéttbýliskjarninn á Norðurlandi vestra. Á Sauðárkróki er fjölbreytt þjónusta; sýningar, söfn, verslanir, veitingar, gisting, sjúkrahús, verkstæði, golfvöllur, skíðasvæði, íþróttavöllur, ærslabelgur, strandblakvöllur, sundlaug o.fl.


    Í Aðalgötunni er verslun Haraldar Júlíussonar sem starfað hefur óslitið frá árinu 1919. Þar er einnig að finna ýmsar sérverslanir, veitingastaði og fyrsta flokks handverksbakarí. Tvær framúrskarandi sýningar eru í Aðalgötunni; Puffin & Friends og 1238 – Baráttan um Ísland. Þar er einnig að finna upplýsingamiðstöð. Stuttan spöl frá Sauðárkróki eru vinsælir ferðamannastaðir eins og Grettislaug og gamli bærinn í Glaumbæ. Daglegar ferðir eru farnar í Drangey frá smábátahöfninni á Sauðárkróki yfir sumartímann og eftir samkomulagi yfir vetrarmánuðina.


    Brekkurnar fyrir ofan bæinn kallast Nafir og eru fornir sjávarkambar. Á Nöfunum er útsýnisskífa þar sem hægt er að njóta þess að horfa yfir fjörðinn. Einnig er golfvöllur upp á Nöfum. Ótal gönguleiðir er að finna á Sauðárkróki og nágrenni.


    Sauðárkrókur er einn öflugasti byggðarkjarni landsbyggðarinnar þar sem saman fer öflug útgerð, úrvinnsla afurða af stóru landbúnaðarsvæði og þjónusta sem jafnast á við það besta sem býðst á landsbyggðinni.


    Austan við Sauðárkrók er Borgarsandur, tæplega fjögurra kílómetra löng svört sandfjara. Þar er upplagt að labba um og njóta útsýnisins út fjörðinn þar sem eyjarnar Drangey og Málmey ásamt Þórðarhöfða blasa við. Við Áshildarholtsvatn er fjölskrúðugt fuglalíf en þar má finna upplýsingaskilti um fugla. Mikið fuglalíf er einnig við ósa Héraðsvatna og á Miklavatni.


  • Vamahlíð

    Varmahlíð er skemmtilegur áningarstaður ferðamanna við þjóðveg nr. 1; byggðakjarni með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. söluskáli, bensínstöð, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Upplýsingamiðstöð ferðamanna er staðsett við hliðina á Olís versluninni og veitingaskálanum. Þar kynnir handverksfélagið Alþýðulist skagfirskt handverk. Í Varmahlíð er barnvæn sundlaug með rennibrautum, heitum potti og gufubaði, sparkvöllur, körfuboltavöllur og ærslabelgur er staðsettur á tjaldstæðinu.


    Gistimöguleikar í Varmahlíð og nágrenni eru fjölbreyttir en hægt að fá gistingu í orlofshúsum, bændagistingu, framúrskarandi tjaldsvæði og á hóteli.


    Menningarhúsið Miðgarður er staðsett í Varmahlíð, þar sem boðið er upp á ýmsar skemmtanir árið um kring.


    Fjölbreyttar gönguleiðir eru í Varmahlíð og nágrenni. Á góðviðrisdegi er gaman að ganga um í skógræktinni á Reykjarhólnum, á göngustígum sem liggja m.a. upp að útsýnisskífu, þaðan sem útsýni er einstakt yfir miðhéraðið. Reykjafoss er staðsettur um 7 km frá Varmahlíð, en hann er einstök náttúruperla. Þá er einnig einstakt að ganga á Mælifellshnjúkinn, Glóðafeyki, Molduxa og Tindastól fyrir þá sem kjósa lengri og meira krefjandi gönguferðir.


    Gott framboð þjónustu er fyrir ferðamenn í sveitunum sunnan Varmahlíðar. Þar er fjölbreytt úrval gistingar, veitingaþjónustu og margir valkostir í afþreyingu, s.s. hestaferðir og hestasýningar, flúðasiglingar, gönguferðir, söfn og kirkjur. Þar eru merkir sögustaðir á annarri hverri þúfu og alls staðar stutt í fallega náttúru. Í Steinstaðabyggð er Aldamótarskógur sem gaman er að ganga um.


    Austurdalur er náttúru- og útivistarperla sem vert er að skoða nánar, en á leið þangað má fara yfir Jökulsá með kláfi (við Skatastaði), ganga um Merkigilið eða koma við í Ábæjarkirkju. Hægt er að komast inn á hálendið úr Skagafirði, bæði Kjalveg og Sprengisandsleið.


  • Hólar í Hjaltadal

    Hólar eru einn sögufrægasti staður Íslands og biskupssetur um aldir. Kirkja hefur staðið á Hólum frá 11. öld, en núverandi kirkja var reist 1763. Hún er byggð úr rauðum sandsteini úr fjallinu Hólabyrðu og er elsta steinkirkja á Íslandi.


    Háskólinn á Hólum hefur stækkað ört á síðustu árum og hefur fjöldi nemendagarða verið byggður. Íbúar Hóla eru yfir tvö hundruð talsins að vetri til. Skólinn sérhæfir sig í ferðamálafræðum, hrossarækt og reiðmennsku, auk fiskeldis og fiskalíffræði.


    Fornleifauppgröftur hefur farið fram á Hólum síðustu ár og hafa yfir 40 þúsund munir fundist. Úrval forngripa er til sýnis í gamla skólahúsinu. Um skóginn hlykkjast spennandi göngustígar sem leiða mann inn í undraheima lifandi náttúru þessa forna sögustaðar.


    Á Hólahátíð, sem er jafnan um miðjan ágúst eru margskonar viðburðir á vegum kirkjunnar s.s. Pílagrímagöngur, helgihald og aðrir menningarviðburðir.


    Laufskálarétt í Hjaltadal er ein vinsælasta stóðrétt landsins en þangað mæta árlega allt að þrjú þúsund gestir og er af mörgum talin drottning stóðréttanna.


  • Hofsós

    Hofsós er friðsæll sjávarbær á austurströnd Skagafjarðar, með yfir 400 ára sögu.


    Sundlaug Hofsóss er fljótt að verða fræg sem eitt af fallegustu infinitylaugum Íslands og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Drangey og fjörðinn. Rétt fyrir neðan laugina bæta áhrifamiklar basaltnámur við Staðarbjargavík við náttúrufegurðina – og samkvæmt þjóðsögum var svæðið einu sinni heimili álfa í Skagafirði.


    Hofsós er einnig ríkur af sögu og menningu. Flóttamannamiðstöðin segir frá Íslendingum sem fluttu til Norður-Ameríku á síðari hluta 18. aldar, á meðan Vintage Auto Museum, sem er stutt akstur í burtu, tekur gesti aftur í tímann.


    Bærinn býður upp á fjölbreytt þjónustu fyrir gesti, þar á meðal notaleg veitingahús, gistingu, matvörubúð, bensínstöð, sundlaug og tjaldsvæði.

  • Steinsstaðir

    Steinsstaðir er paradís fyrir náttúruunnendur og býður upp á fjölbreytta ferðaþjónustu fyrir alla aldurshópa. Svæðið hefur fallega gönguleiðir í gegnum þúsund ára gamalt skóglendi, fullkomnar bæði fyrir létt gönguferð og ævintýralegri útivist. Útivistarfólk getur notið flúðasiglinga, kajakferða og annarra vatnsíþrótta, á meðan fjölskyldur geta nýtt vel útbúin tjaldsvæði sem eru kjörin fyrir samkomur og eftirminnilega dvöl. Steinsstaðir býður einnig upp á fjölbreytt gistival, allt frá hlýlegum gistiheimilum til bæjardvalar, sem gerir það að fullkomnum stað til að kanna stórkostlega landslagi Skagafjarðar.

  • Fljót

    Fljót er heillandi þorp í Skagafirði, umvafið lindóttu hæðum, ám og víðáttumiklu landslagi. Þorpið er þekkt fyrir friðsæla stemningu og stórkostlega náttúrufegurð og er fullkomin áfangastaður fyrir útivistarfólk og þá sem leita að rólegu andrúmslofti. Gestir geta kannað fagurgróna gönguleiðir, notið fuglaskoðunar eða upplifað íslenskt búsetulíf með nærliggjandi bæjum og hestaleigum. Þorpið býður einnig upp á grunnþjónustu, notalegt gistingu og vinalega veitingastaði, sem gerir það að kjörnum stað til að kanna víðara svæði Skagafjarðar.