Gallerí Alþýðulist

Gallerí Alþýðulist er handverkssala í Varmahlíð í Skagafirði. Í yfir 30 ár höfum við selt handunnar íslenskar vörur frá handverksfólki á svæðinu.

Félagar í Alþýðulist, sem er handverksfélag í Skagafirði, búa til fjölbreytta hluti – stóra og smáa – úr ýmsum náttúrulegum hráefnum eins og ull, hrosshári, tré, beini, horni, skinni og roði.

Sérstaklega má nefna peysur sem félagsmenn létu hanna fyrir félagið, sem bera nöfnin „Undir bláhimni“ og „Undir gráhimni“. Einnig er hægt að fá húfur og vettlinga með sama munstri. Peysurnar hafa verið geysi vinsælar meðal gesta víðs vegar að úr heiminum.

Auk þeirra er fjölbreytt úrval af öðrum fallegum peysum ásamt fallegu handverki til sölu hjá okkur.

Lögð er mikil áhersla á vönduð vinnubrögð, íslenska hefð og fallegt handverk.


Rúnalist Gallerí – Stórhól

Rúnalist Gallerí framleiðir vörur úr hráefni af býlinu s.s. skinnum, ull og hornum. Vörur beint frá býli og húsdýraskoðun t.d. íslenskar landnámsgeitur.