
Lýtingsstaðir eru hrossaræktarbú við veg nr. 752, um 15 mínútna akstur frá Varmahlíð.
Boðið er upp á stuttar hestaferðir með leiðsögn í fallegu umhverfi.
Farið er einungis með litla hópa. Frábærir hesta sem henta vönum og óvönum knöpum.
Lágmarksaldur er 6 ára. Hægt er að teyma undir yngri börn heima á bænum eða koma í sveitaheimsókn með hestaknús. Nauðsynlegt er að bóka tíma.

Syðra-Skörðugil býður upp á 1 og 2 klukkustundna hestaferðir. 1 klst hestaferð þar sem farið er um hluta Syðra-Skörðugils. Fyrir byrjendur og lítið vana. 2 klst hestaferð í landi Syðra-Skörðugils. Í ferðinni er hægt að njóta kyrrðar í yndislegu landslagi og fallegu útsýni.


Skíðasvæðið í Tindastóli hentar sérlega vel fyrir alla fjölskylduna. Þar er að finna tvær lyftur ásamt töfrateppi. Neðri lyfta fer í 1100 metra hæð (440 metra yfir sjávarmáli) og eru 2 brautir norðan og vestan megin. Efri lyftan byrjar þar sem fyrri endar, er 1000 metrar á hæð og fer alveg upp á topp Tindastóls þar sem lofhæðin er 903 metrar yfir sjávarmáli og útsýnið einstakt. Stökkpallar og brautir eru fyrir snjóbrettafólk í Tindastóli. Göngubraut er troðin alla daga sem opið er á svæðinu. Troðinn er 4-7 km hringur í fjölbreyttu landslagi, en einnig er hægt að fara styttri hring á tiltölulega sléttu svæði.




Hlíðarendavöllur á Nöfunum á Sauðárkróki er einn lengsti og glæsilegasti 9 holu golfvöllur landsins og fær einróma lof þeirra sem hann sækja. Hann þykir sérstaklega erfiður fyrir þá sem spila á rauðum teigum. Af hvítum teigum er völlurinn tæplega 6000 metrar. Af gulum teigum 5636 metrar og af rauðum 4876 metrar. Á Hlíðarendavelli spilar þú golf með frábært útsýni yfir eyjarnar í Skagafirði.




Bakkaflöt



Sundlaugin í Varmahlíð er vinsæl fjölskyldulaug með tvær rennibrautir. Önnur er lítil og góð fyrir þau minnstu en hin er stór og hentar betur fyrir eldri börn. Laugin skiptist í 25 metra laug og 8 metra laug sem er grynnri og heitari og hentar einstaklega vel fyrir alla fjöslkylduna. Stutt er í Reykjarhólinn frá Sundlauginni í Varmahlíð, en þar er að finna skemmtilegar gönguleiðir fyrir alla aldurshópa og einstakt útsýni. Við hliðina á sundlauginni er körfuboltavöllur og aðeins ofar er að finna sparkvöll og ærslabelg.

Heitt vatn rennur í iðrum jarðar í Skagafirði. Fyrir vikið er þar að finna allamargar heitar náttúrulaugar.

Sýningar Byggðasafns Skagfirðinga eru í þremur húsum á safnsvæðinu í Glaumbæ. Í gamla torfbænum, sem er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands, er sýningin „Mannlíf í torfbæjum“. Þar stíga gestir aftur í tímann þegar þeir ganga inn um bæjardyrnar og fá innsýn í daglegt líf fólks sem bjó í slíkum húsum á Íslandi á 19. og í byrjun 20. aldar.
Á safnsvæðinu standa einnig tvö timburhús frá 19. öld. Í Gilsstofu eru sýningar á tveimur hæðum en í Áshúsi er kaffistofa safnsins ásamt nokkrum smærri sýningum.

Drangeyjarferðir

Um þessar mundir eru tvær sýningar í gangi í setrinu. Annars vegar er sýning sem dregur upp mynd af mikilvægi íslenska hestsins í daglegu lífi þjóðarinnar á 20. öld, og hins vegar sýning sem fjallar meðal annars um litafjölbreytileika íslenska hestsins og litaerfðir, stofnun upprunaættbókarinnar, heiðursverðlaunahross, afrekshross og önnur lykilviðfangsefni sem tengjast íslenska hestinum.
Opnunartími:
Opið frá 1. júní til 31. ágúst, 11:00–17:00 (laugardaga lokað).

Samgöngusafnið í Stóragerði var formlega opnað þann 26. júní 2004. Þá var safnið 600 fm salur með lítilli gestamóttöku. Á nokkrum árum var umfangið á safninu orðið það mikið að stækka þurfti salinn um 800 fm ásamt gestamóttökunni, byrjað var á því haustið 2010 og var full klárað fyrir sumarið 2013. í dag eru um 100 tæki til sýnis í salnum og má þar nefna bíla, rútur, mótorhjól, snjósleða, búvélar, flugþyt og ekki má gleyma öllu því smádóti sem tengist samgöngusögu Íslendinga. Fyrir utan safnið og í kringum það má svo áætla að séu í kringum 200-250 bílar og tæki í misgóðu ásigkomulagi sem flestum gestum okkar þykir ótrúlega gaman að skoða. Verið velkomin í Stóragerði



Vesturfarasetrið á Hofsósi

Söguskjóðan býður upp á tilbúnar ferðir með leiðsögn á Norðurlandi vestra. Einnig tökum við að okkur klæðskerasniðna leiðsögn og rútuakstur fyrir hópa eða fjölskyldur.
